Hótel Laugarbakki er nýtt 3 stjörnu hótel á bökkum Miðfjarðarár í V-Húnavatnssýslu
Hótelið er miðja vegu á milli Reykjavíkur og Akureyrar, eða 193 km frá Reykjavík. 198 km eru frá Laugarbakka norður á Akureyri. Frá hótelinu er útsýni yfir Miðfjarðará, eina frægustu laxveiðiá landsins. Á leiðinni fyrir Vatnsnes eru söguslóðir Vatnsenda-Rósu og klettadrangurinn Hvítserkur gnæfir yfir sjávarmálinu. Grettir Ásmundarson, frægasti útlagi Íslendingasagnanna, ólst upp í Miðfirði og úti á Húnaflóa háðu Þórður kakali og Kolbeinn ungi einu sjóorrustuna við Ísland, Flóabardaga árið 1244.
56 glæný herbergi öll með baði eru á Hótel Laugarbakka
Erum með 1×1, 1×2, 1×3, fjölskylduherbergi og junior svítur.
Öll herbergi eru útbúin með sjónvarpi, hárþurrku, baðvörum, og sloppum. GSM sími fylgir með til afnota fyrir gesti.
Veitingastaðurinn Bakki er á hótelinu. Við leggjum áherslu á að bjóða upp á mat mat úr héraði ásamt bar.
Fundar-og ráðstefnusalir eru á Hótel Laugarbakka, Ásdísarstofa fyrir minni fundi og Grettir fyrir stærri ráðstefnur.
Heitir pottar eru á hótelinu, frítt fyrir gesti.
Frítt þráðlaust net í alrýmum hótelsins og í öllum herbergjum
Frí bílastæði
Útileiksvæði fyrir börn
Tölva til afnota fyrir gesti
Ýmis afþreying er í boði fyrir gesti, upplýsingar hægt að nálgast í móttöku og á heimasíðu okkar.
Í næsta nágrenni:
Sundlaug (10 km)
Selaskoðun
Hestaleigur
Fuglaskoðun
Sögufrægar timburkirkjur
Minjar frá miðöldum
Frábærar laxveiðiár Stangveiði
Silungsveiði
Hótelið opnaði í maí 2016